• Félagsfræðingur vikunnar

    From Karaoke
  •  

    August 2007
    S M T W T F S
        Sep »
     1234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    262728293031  
  • Vinsældir

    • 32,609 Heimsóknir

Ný heimasíða

Nýrri stjórn fylgir að sjálfsögðu nýrri, betri og bættari heimasíða.
Þessi er reyndar ennþá í vinnslu en mun verða betri og betri þegar líður á skólaárið.

Skólinn fer að senn að byrja, eða mánudaginn 3.september.
Skólanum mun að sjálfsögðu fylgja brjálað félagslíf og ég skal lofa ykkur því að þetta verður skemmtilegasta skólaárið. Það er fullt á döfinni í vetur og verður skemmtanalíf þessarar stjórnar vígt (reyndar fyrir utan próflokadjammið) með nýnemakvöldi sem verður 7. september, það verður nánar auglýst síðar.

Strax í næstu viku mun sala á nemendafélagsskírteinum hefjast, að þessu sinni munu þau kosta 3000kr. Með því að eiga eitt slíkt muntu fá frítt í allar vísindaferðir sem annars kosta 500kr stk, önnur fríðindi sem verða kynnt á næstu dögum og ódýrari miða á árshátíðina sem verður á vorönn 2008. Við hvetjum því alla til að fjárfesta í einu slíku.

 Við viljum minna alla nýnema á nýnemakynninguna föstudaginn 31.ágúst kl15 í stóra salnum í Háskólabíói, eftir kynninguna verður haldið í stofu 201 í Odda þar sem nánari kynning fer fram. Þar munu m.a. vera útsendarar stjórnar Sociologicu og þau munu kynna fyrir ykkur veturinn framundan.

Við í stjórninni bjóðum alla nýnema velkomna í félagsfræði, þar sem skemmtilegast er að vera og að sjálfsögðu alla hina velkomna í skólann aftur.

Leave a Reply